16.11.26 - 17:17
Brynjar Ingi Erluson
Thomas Frank tekinn við Palace (Staðfest)

Thomas Frank er tekinn við Palace

Mynd: EPA

Thomas Frank er tekinn við Palace

Mynd: EPA
Danski þjálfarinn Thomas Frank hefur verið ráðinn nýr stjóri Crystal Palace á Englandi.
Frank tekur við af Pierre Sage, sem var rekinn eftir aðeins sextán leiki í öllum keppnum á tímabilinu, en Palace er í neðsta sæti deildarinnar.
Stjórnarmenn Palace hafa átt í viðræðum við Frank undanfarna daga og nú hefur félagið staðfest ráðningu hans. Daninn skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning sem gildir til ársins 2029.
Frank var síðast við stjórnvölinn hjá Tottenham, en hann tók við liðinu sumarið 2025 og var rekinn í febrúar.
Áður hafði hann náð frábærum árangri með Brentford, sem hann kom upp úr ensku B-deildinni og í úrvalsdeildina. Þar tókst honum að festa liðið í sessi og gera það að öflugu úrvalsdeildarliði sem gat veitt stærri félögunum harða samkeppni.
Frank hefur einnig þjálfað Bröndby í Danmörku og yngri landslið Dana.

We are pleased to confirm the appointment of Thomas Frank as Manager ????
— Crystal Palace F.C. (@CPFC) November 16, 2026
?? https://t.co/2wUzZAGt4S https://t.co/zv2vMPGPFz