01.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Martínez fékk blessun frá Terry

Mynd: EPA

Mynd: Aston Villa

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Emiliano Martínez gekk til liðs við Chelsea á dögunum og klæddist treyju númer 26 þegar hann varði markið í sjö marka leik gegn Brighton um helgina.

TENGT EFNI
Emi Martínez til Chelsea (Staðfest)
Chelsea vann 4-3 eftir afar skemmtilegan slag og var Martínez spurður út í treyjunúmerið sem John Terry gerði frægt á sínum tíma.
Terry yfirgaf félagið árið 2017 og síðan þá hafa miðverðirnir Kalidou Koulibaly og Levi Colwill klæðst treyju númer 26, en núna er röðin komin að Emi Martínez sem sendi skilaboð á Terry þegar hann fékk treyjuna.
„Ég hef notað treyju númer 26 nokkrum sinnum á ferlinum og ég vissi að John Terry klæddist treyjunni hérna hjá Chelsea. John er einn af þeim sem ég talaði við áður en ég skipti yfir til Aston Villa og hann sagðist vera mjög ánægður með félagaskiptin. Hann þekkir mig vel frá tímum okkar saman hjá Aston Villa, hann veit hversu mikið ég legg mig fram á æfingum og hvað ég get fært Chelsea," sagði Martínez.
„Þegar ég skrifaði undir hjá Chelsea sendi ég honum skilaboð: 'Ég mun klæðast treyjunni þinni með stolti.'"
Chelsea borgar 7,5 milljónir punda fyrir Martínez, sem fagnar 33 ára afmæli á morgun og gerir tveggja ára samning með möguleika á auka ári.
Emi Martínez var hjá Arsenal frá 2010 til 2020 og segir það vera draumi líkast að spila fyrir Chelsea, sem endaði í tíunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.
„Ég hef verið á Englandi í að verða 17 ár og það er draumur að spila fyrir Chelsea."

Joao Pedro: Ég bað Martínez afsökunar

Mynd: Aston Villa

Mynd: EPA