Fotbolti.net
01.09.26 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Óskar Hrafn: Tveir af bestu mönnum KR á tímabilinu

 Við sækjum orku til fólksins okkar í stúkunni og stuðningurinn hefur verið til fyrirmyndar í ár

Við sækjum orku til fólksins okkar í stúkunni og stuðningurinn hefur verið til fyrirmyndar í ár

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 17:30 tekur KR á móti Víkingi í toppslag Bestu deildarinnar. Átta stig skilja liðin á toppnum fyrir leikinn á Meistaravöllum þegar sjö umferðir eru eftir af mótinu. Með sigri getur KR minnkað forskotið niður í fimm stig.

Fótbolti.net ræddi í gær við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, um leikinn.
Líkleg byrjunarlið í stórleiknum - Tveir snúa aftur hjá KR og enginn Vatnhamar
TENGT EFNI

Líkleg byrjunarlið í stórleiknum - Tveir snúa aftur hjá KR og enginn Vatnhamar

Tveir tæpir en aðrir heilir
„Það eru flestallir heilir hjá okkur, Hjalti Sigurðsson er aðeins tæpur og svo er spurning hvort Jason Daði Svanþórsson geti tekið þátt. Aðrir eru heilir," segir Óskar Hrafn.

„Jason fann aðeins fyrir í hnénu fyrir þremur vikum eða svo og reyndi að harka sig í gegnum það. Hann hefur fengið smá tíma núna og við sjáum til hvort hann geti tekið þátt í leiknum."

Arnar Freyr kominn aftur í hópinn
Arnar Freyr Ólafsson meiddist í byrjun móts en var mættur á varamannabekkinn gegn KA. Hvernig er staðan á honum?

„Hún er nokkuð góð, hann er á undan áætlun í sínum bata miðað við það sem haldið var í fyrstu. Við þufum að fara varlega með hann. Það er mjög gott að fá hann aftur inn í hópinn, hann var búinn að spila virkilega vel áður en hann meiddist. Dóri hefur komið inn og spilað vel, þannig það verður bara að koma í ljós hvernig framhaldið verður."

Enginn höfuðverkur
KR endurheimtir tvo lykilmenn úr leikbanni í leiknum því þeir Arnór Ingvi Traustason og Finnur Tómas Pálmason voru ekki með gegn KA í síðasta leik. Verður liðsvalið einhver höfuðverkur eftir öfluga frammistöðu frá þeim Michael Akoto og Sigurði Breka Kárasyni í síðasta leik?

„Nei, raunverulega ekki. Við erum að tala um tvo af sennilega þremur bestu leikmönnum KR á tímabilinu þegar við ræðum um Finn Tómas og Arnór Ingva. Það var mjög sterkt að fá góða frammistöðu frá Michael Akoto gegn KA og sérstaklega gaman að sjá Sigga Breka aftur á vellinum. Hann spilaði mjög vel gegn KA."

Spiluðu vel í fyrri leiknum en vantaði upp á mörkin
Fyrri leikur liðanna í sumar endaði með 2-0 sigri Víkings. Ef mig misminnir ekki þá áttuð þið fínan leik og voruð kannski óheppnir að fá ekkert út úr honum?

„Ég er sammála því, við spiluðum vel en það vantaði upp á drápseðlið hjá okkur, að taka sénsana okkar. Það er eitthvað sem Víkingur hefur sýnt að liðið er framúrskarandi í, þeir nýta tækifærin þegar þau gefast."

KR var í fallbaráttu seinni hluta síðasta tímabils en bjargaði sér fyrir horn undir lok móts. Óskar segir liðið hafa tekið miklum framförum en þurfi að sýna að það geti unnið Víkingana. Hann segir að liðið fari inn í þennan leik eins og hvern annan.

„Ég held það sé ekkert leyndarmál að við ætlum að reyna setja á þá við hvert tækifæri."

Muni ekki hafa áhrif á mætingu
Eru vonbrigði að leikurinn hefjist svona snemma?

„Nei, það eru engin flóðljós og ekkert við því að gera. Ég held að þetta hafi mögulega áhrif á það hvenær fólk kemur á svæðið og kannski verður stemningin aðeins rólegri til að byrja með, en ég held að þetta muni á endanum ekki hafa áhrif á mætinguna."

Sækja orku í stúkuna
Hversu mikilvægt er að KR-ingar vinni baráttuna í stúkunni?

„Ég held það sé mjög mikilvægt. Við sækjum orku til fólksins okkar í stúkunni og stuðningurinn hefur verið til fyrirmyndar í ár. Ég hef fulla trú á því að okkar stuðningsfólk fjölmenni og láti mjög vel í sér heyra. Við vorum undirmannaðir í fyrri leiknum en það heyrðist samt mjög vel í okkar stuðningsfólki, ég býst við enn eru meiru í þessum leik."

Hafi engin áhrif á Víkingana
Víkingur féll úr leik í Evrópu í liðinni viku. Telur þú að það muni hafa áhrif á þá komandi inn í leikinn?

„Ef við metum það út frá sögunni þá sátu vonbrigðin í fyrra, að detta út fyrir Bröndby, ekkert í þeim. Þeir hafa núna prófað bæði að komast áfram í Evrópu og svo núna að detta út á síðustu hindruninni. Ég held þeir séu það vel rútínerað lið að þetta hafi engin áhrif á þá."

Flestir góðir í stærðfræði
Mikilvægi leiksins, KR getur með sigri minnkað forskot Víking niður í fimm stig. Ræðir þú við strákana um það í aðdragandanum?

„Nei, ég held að flestir í hópnum séu nokkuð góðir í stærðfræði, vita hvernig staðan er. Við þurfum fyrst og fremst að einbeita okkur að þessum eina leik, ekki horfa í stöðuna í deildinni," segir þjálfari KR-inga.
KR er taplaust í síðustu sjö leikjum.

KR er taplaust í síðustu sjö leikjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Ingvi hefur verið frábær á sínu fyrsta tímabili með KR.

Arnór Ingvi hefur verið frábær á sínu fyrsta tímabili með KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Finnur Tómas er að eiga sitt besta tímabil síðan 2019.

Finnur Tómas er að eiga sitt besta tímabil síðan 2019.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr fyrri leik liðanna.

Úr fyrri leik liðanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stuðningsmenn KR létu vel í sér heyra í Víkinni.

Stuðningsmenn KR létu vel í sér heyra í Víkinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Óskar Hrafn: Tveir af bestu mönnum KR á tímabilinu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2Fram21+1444
3KR20+2743
4Breiðablik21+330
5Keflavík21-428
6ÍA21-427
7Stjarnan21-827
8Valur21-724
9FH21-1121
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA21-1417
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.