01.09.26 - 12:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Víkingar fordæma skemmdarverkin

Mynd: Hilmar Þór

Mynd: Hilmar Þór

Mynd: Kári Snorrason

Mynd: Kári Snorrason

Mynd: Hilmar Þór
Í morgun var greint frá því að óprúttnir aðilar hefðu gert skemmdarverk á heimavelli KR, en liðin munu mætast í toppslag Bestu deildarinnar í dag. Fótbolti.net sagði frá því að stuðningsmenn Víkings hefðu farið á Meistaravelli í nótt og málað bæði stúku og varamannaskýli KR rauð.
Víkingar fordæma gjörninga eins og þennan. Fótbolti.net ræddi við Heimi Gunnlaugsson sem er formaður fótboltadeildar Víkings.

TENGT EFNI
Víkingar máluðu Meistaravelli rauða - „Algjörlega ólíðandi og óþolandi“
„Auðvitað fordæmum við alltaf skemmdarverk. Það er spenna, stemning, hiti og „banter". En þarna var farið aðeins yfir strikið. Um leið og við heyrðum af þessu þá höfðum við samband við KR-ingana, buðumst til þess að hjálpa þeim að þrífa þetta og senda málara ef á þurfti að halda. En sem betur fer virðist þetta fara nokkuð auðveldlega af og ég mér heyrist að þetta eigi að vera farið af fyrir kvöldið," segir Heimir.
Vitið þið hver eða hverjir voru að verki?
„Nei, við vitum það ekki."
Það kom upp svipað mál í tengslum við leik Víkings og Breiðabliks haustið 2024 og þið voruð ekki sáttir þá. Er extra pirrandi að svona svipað mál komi upp frá ykkar hlið?
„Nei nei, við stýrum ekki hvað fólk gerir. Ástæðan fyrir því að við vorum pirraðir þá var sú að það varð tjón á verðmætum sem við vorum með í láni; bretti sem má ekki nota þegar búið var að mála þau. Við stýrum því ekki hvað fólk geri rog það er líklegt að þetta hafi verið okkar stuðningsmenn. Það er ekkert annað í stöðunni en að fordæma það. Það á ekki að eyðileggja eigur annarra."
Heldur þú að þetta hafi einhver áhrif á stemninguna komandi inn í leikinn, hjá stuðningsmönnum?
„Ég get alveg trúað því að þetta hafi áhrif á stemninguna hjá stuðningsmönnum. Ég efast um að þetta hafi einhver áhrif á leikmenn, held að þeir séu alveg gíraðir í báðum línum. Ég get alveg trúað því að stuðningsmenn KR verði extra mótíveraðir og þá þurfa okkar stuðningsmenn líka að vera það," segir Heimir. Hér að neðan er svo yfirlýsing frá Víkingi.
Leikurinn hefst klukkan 17:30.
Yfirlýsing Víkings
Stjórn knattspyrnudeildar Víkings harmar þau skemmdarverk sem unnin voru á heimavelli KR síðastliðinn sólarhring. Slík háttsemi er ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir.
Knattspyrnudeild Víkings hafði strax og okkur varð kunnugt um málið samband við KR og var boðin fram aðstoð við þrif á vellinum.
Að takast á, æsa upp í mótherjanum og láta skot flakka tilheyrir allt saman leiknum en skemmdarverk eru aldrei liðin.
Með vinsemd og virðingu,
Stjórn knattspyrnudeildar Víkings