01.10.13 - 13:02
Magnús Már Einarsson
Rikki Daða ekki áfram með Fram (Staðfest)
„Mikil eftirsjá að hann skuli ekki vera áfram\"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ríkharður Daðason verður ekki áfram þjálfari Fram en þetta staðfesti Sverrir Einarsson formaður knattspyrnudeildar félagsins í samtali við Fótbolta.net í dag.
Ríkharður gerði Fram að bikarmeisturum í sumar og félagið vildi halda honum. Samningaviðræður hans við félagið gengu ekki upp.

,,Við ræddum við hann fyrir helgi og gerðum honum tilboð en það gekk ekki saman,\" sagði Sverrir við Fótbolta.net í dag.
,,Það er mikil eftirsjá að hann skuli ekki vera áfram. Við buðum honum að vera áfram og Rikki er toppmaður. Hann er mikill Framari og það kemur titill í hús þó að deildin hafi ekki verið eins og við vildum.\"
Ríkharður tók við Fram af Þorvaldi Örlygssyni í júní en nú eru Framarar á ný í leit að þjálfara.
,,Við erum að ræða málin núna og skoða næstu skref. Það er mikill uppgangur í félaginu og menn eru stútfullir af krafti og vilja byggja ofan á þetta. Það er Evrópukeppni framundan og menn ætla að spýta í lófana,\" sagði Sverrir.
Sverrir segir að Framarar séu einnig að vinna í leikmannamálum sínum þessa dagana.
,,Við erum að reyna að halda öllu okkar. Auðvitað detta einhverijr úr skaftinu en við erum að skoða fullt af hlutum. Við erum hlynntir því að gefa ungum strákum sénsa hjá okkur og við sýndum það í sumar. Við vijlum halda því. Þetta snýst ekki allt um að kaupa einhverja stórlaxa fyrir stórfé, þú ert ekki alltaf öruggur með gæðin í því.\"