01.10.13 - 21:03
Alexander Freyr Tamimi
Zoran Miljkovic verður ekki áfram með Þrótt (Staðfest)

Zoran er hættur með Þrótt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Zoran er hættur með Þrótt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Zoran Miljkovic verður ekki áfram þjálfari Þróttar á næstu leiktíð.
Zoran samdi við liðið út þessa leiktíð og tókst að hjálpa Þrótti að tryggja sæti sitt í 1. deildinni, en hins vegar var ákveðið að bjóða honum ekki nýjan samning.
Zoran hefur leikið með ÍA, ÍBV og Víkingi Reykjavík og þá hefur hann þjálfað lið Selfyssinga og Leiknis Reykjavíkur.
Þegar hann tók við liði Þróttar af Páli Einarssyni var liðið í næst neðsta sæti 1. deildarinnar með fimm stig eftir átta leiki.
Þróttur endaði tímabilið í 10. sæti með 23 stig, tveimur stigum ofar en KF sem féll.