Eiður Benedikt Eiríksson er hættur sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Val. Eiður hóf störf hjá Val árið 2019 og starfaði við hlið Péturs Péturssonar.
Þeir tveir gerðu liðið að Íslandmeisturum árið 2019 og svo aftur í sumar.
Þeir tveir gerðu liðið að Íslandmeisturum árið 2019 og svo aftur í sumar.
Eiður er fæddur árið 1991 og er uppalinn hjá Fjölni. Áður en hann tók við starfinu hjá Val hafi hann starfað sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fylki og hjá Fjölni sem yngri flokka þjálfari og þjálfari Vængja Júpíters.
„Við þökkum Eiði fyrir hans störf og óskum honum velfarnaðar á nýjum vettvangi!" segir í tilkynningu Vals.
Athugasemdir