Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 01. október 2021 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sturridge til Glory (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Daniell Sturridge, fyrrum leikmaður Chelsea, Manchester City, Liverpool og enska landsliðsins, hefur samið við ástralska félagið Perth Glory út tímabilið.

Sturridge er 32 ára gamall sóknarmaður sem hefur verið án félags í eitt og hálft ár eftir að hafa yfirgefið tyrkneska félagið Trabzonspor.

Daniel skoraði 67 mörk í 160 leikjum á sex og hálfu tímabili með Liverpool.

Árið 2019 hélt hann til Tyrklands og skrifaði undir þriggja ára samning en samningnum var rift þegar Sturridge fékk fjögurra mánaða bann fyrir brot á veðmálareglum.
Athugasemdir
banner
banner
banner