Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 01. október 2021 20:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vladan Djogatovic áfram hjá Magna (Staðfest)
Vladan Djogatovic.
Vladan Djogatovic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Vladan Djogatovic verður áfram í markinu hjá Magna Grenivík á næsta tímabili.

Vladan fór til Magna í sumarglugganum á síðasta tímabili og spilaði seinni hluta sumarsins á Grenivík. Hann stóð sig vel og fékk Magni á sig fæst mörk í 2. deildinni eftir komu hans.

Markvörðurinn er fæddur árið 1984 og stóð hann vaktina með Grindavík sumrin 2019 og 2020. Hann fór til KA fyrir síðasta tímabil og var þar varamarkvörður áður en hann gekk til liðs við Magna.

„Magnamenn eru í góðum höndum því markmaðurinn reyndi Vladan Djogatovic verður áfram með okkur. Eftir komu hans í sumar fengum við flest stig í deildinni ásamt því að fá á okkur fæst mörk!" segir í tilkynningu Magna.

Ásamt því að spila í markinu hjá Magna, þá verður hann markvarðarþjálfari hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner