01.11.26 - 15:03
Brynjar Ingi Erluson
Langþráður sigur hjá Stefáni - Daníel Tristan, Guðlaugur Victor og Logi í tapliðum

Stefán Teitur Þórðarson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Logi Tómasson og félagar í Samsunspor eru í brasi

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stefán Teitur Þórðarson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Stefán Teitur Þórðarson og félagar hans í Hannover fögnuðu langþráðum 2-1 sigri á Dynamo Dresden í þýsku B-deildinni í dag.
Hannover hafði átt erfitt uppdráttar að undanförnu og ekki unnið leik síðan í september.
Liðið komst hins vegar aftur á sigurbraut í dag, en Stefán var á sínum stað í byrjunarliðinu.
Hannover var 1-0 undir í hálfleik þegar Stefán fór af velli, en félagar hans sneru leiknum sér í vil í síðari hálfleik með tveimur mörkum á aðeins sjö mínútum.
Með sigrinum fór Hannover upp í 12. sæti deildarinnar með ellefu stig.
Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Horsens sem tapaði 1-0 fyrir Viborg í dönsku úrvalsdeildinni. Hann fór af velli á 77. mínútu, en Horsens situr í sjöunda sæti með sextán stig.
Daníel Tristan Guðjohnsen kom inn af varamannabekknum hjá Malmö sem tapaði 2-1 fyrir Hammarby. Malmö er í sjöunda sæti deildarinnar með 40 stig.
Bjarni Mark Antonsson og Oskar Sverrisson voru báðir í byrjunarliði Trelleborg sem vann 2-1 sigur á Laholms í næstsíðustu umferð sænsku C-deildarinnar.
Trelleborg hefur þegar tryggt sér efsta sæti deildarinnar og þar með sæti í B-deildinni á næsta tímabili.
Logi Tómasson var í liði Samsunspor sem steinlá 5-2 fyrir Basaksehir í tyrknesku úrvalsdeildinni. Samsunspor hefur byrjað tímabilið skelfilega og situr í næstneðsta sæti með aðeins fjögur stig eftir tíu leiki.