Fotbolti.net
01.11.26 - 14:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

McAusland tekur við Njarðvík (Staðfest)

McAusland þekkir vel til í Njarðvík en hann lék með liðinu á árunum 2020-23.

McAusland þekkir vel til í Njarðvík en hann lék með liðinu á árunum 2020-23.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Lengjudeildin
Njarðvík tilkynnti rétt í þessu Marc McAusland (1988) sem nýjan þjálfara meistaraflokks karla. McAusland kemur frá Víði þar sem hann hjálpaði liðinu að fara upp úr 3. deildinni á liðnu tímabili.

McAusland þekkir vel til í Njarðvík en hann lék með liðinu á árunum 2020-23. Hann er reynslumikill skoskur varnarmaður sem leggur nú skóna á hilluna og einbeitir sér alfarið að þjálfun. McAusland gerir þriggja ára samning við Njarðvík.

Hann tekur við Njarðvík af Davíð Smára Lamude sem sagði upp stöfum fyrir tæpri viku síðan eftir að hafa endað í 5. sæti Lengjudeildarinnar með liðið.
Fyrr í dag var tilkynnt að Njarðvík væri komið með nýjan markvörð fyrir komandi átök en Pálmi Rafn Arinbjörnsson er kominn aftur heim til Njarðvíkur.

Tilkynning Njarðvíkur
Knattspyrnudeild Njarðvíkur hefur ráðið Marc McAusland sem þjálfara meistaraflokks karla til næstu þriggja ára, eða út keppnistímabilið 2029.

Marc lýkur því stór glæsilegum ferli sínum sem leikmaður og tekur við sínu fyrrum félagi sem hann var fyrirliði hjá árin 2020-2023 við góðan orðstír.

Auk Njarðvíkur á Marc glæsilegan feril sem leikmaður St. Mirren í Skotlandi, og með Keflavík, Grindavík, ÍR og nú síðast Víði Garði á Íslandi.

Alls lék Marc 105 leiki fyrir Njarðvík og skoraði 19 mörk en Marc er mikill leiðtogi og hefur ætíð verið fyrirliði sama hvert hann fer.

Marc er með UEFA A gráðu og hefur áður þjálfað yngri flokka hjá Njarðvík, auk þess að hafa verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks fyrsta tímabilið sitt hjá Njarðvík en Marc tekur nú við sem þjálfari meistaraflokks karla og bindur stjórn Knattspyrnudeildar Njarðvíkur miklar vonir við ráðninguna.

Vinna við að manna þjálfarateymi Marc er í fullum gangi og miðar vel, og birtar verða frekari tilkynningar á næstu dögum.

Við bjóðum Marc hjartanlega velkominn til Njarðvíkur á nýjan leik og hlökkum til að taka á móti honum þegar hann kemur heim úr fjölskyldufríi í Florida
Var fyrirliði Njarðvíkur.

Var fyrirliði Njarðvíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.