Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 01. desember 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Daði Snær snýr aftur í Hauka (Staðfest)
Daði Snær Ingason.
Daði Snær Ingason.
Mynd: Hulda Margrét
Daði Snær Ingason er búinn að skrifa undir samning við Hauka og mun leika með liðinu næsta sumar.

Daði er uppalinn Haukamaður og spilaði með meistaraflokki félagsins frá 2015 til 2019. Hann ákvað að leggja skóna á hilluna, en dró þá fram aftur 2020 og byrjaði að sprikla með KÁ, venslafélagi Hauka.

Hann spilaði með KÁ í 4. deildinni 2020 og síðasta sumar þar sem hann skoraði 11 mörk í 14 leikjum.

Daði hefur ákveðið að snúa aftur í Hauka fyrir næstu leiktíð. „Daði spilar jafnan sem framliggjandi miðjumaður og verður virkilega ánægjulegt að sjá hann aftur í aðal liði Hauka enda bindum við miklar vonir við hann," segir í tilkynningu Hauka.
Athugasemdir
banner
banner