Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 02. janúar 2020 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Adam hrósar eigendum Liverpool
John Henry og Tom Werner.
John Henry og Tom Werner.
Mynd: Getty Images
Charlie Adam, fyrrum leikmaður Liverpool og núverandi leikmaður Reading, hefur hrósað eigendum Liverpool fyrir þeirra vinnu.

Fenway Sports Group á Liverpool, en þar eru John W. Henry og Tom C. Werner æðstu menn. Þeir tóku við stjórnartaumunum hjá félaginu árið 2010 og síðan þá hefur félagið hægt og bítandi verið á uppleið.

Núna er Liverpool ríkjandi Evrópumeistair og á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með gott forskot. Hlutirnir gætu vart gengið betur.

„Það verður að hrósa eigendum Liverpool mikið því félagið var eitt sinn í vandræðum, þú vissir ekki hvar félagið myndi enda. Nýju eigendurnir komu inn og hafa eytt peningum skynsamlega, byggt nýja stúku og nýja æfingasvæðið lítur stórkostlega út. Þeir hafa gert félagið að eftirsóknarverðum stað," sagði Adam við BBC Radio 5 Live í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner