Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 02. apríl 2020 09:45
Elvar Geir Magnússon
Launalækkanir hjá Þór - „Allir verða að koma að borðinu"
Mynd: Raggi Óla
„Þetta er strax farið að hitta okkur illa því að við náðum ekki að halda stór mót sem áttu að vera í mars og óvíst hvort eða hvenær hægt er að halda þessi mót," segir Reimar Helgason, framkvæmdastjóri Þórs, í samtali við heimasíðu félagsins.

Hann segir að kórónaveiran mjög mikil áhrif á rekstur og rekstrarplön knattspyrnudeildar.

„Það yrði mjög mikið högg ofan í það að fyrirtæki haldi eðlilega að sér höndum í styrktarmálum. Við sjáum ekki hvað höggið verður mikið fyrr en við sjáum hvað þetta ástand varir lengi og hvenær við komumst af stað inn í sumarið."

„Það verður ekki komist hjá því að taka upp samninga sem knattspyrnudeildin hefur verið að gera fyrir komandi tímabil og ég held að allir átti sig á stöðunni; geri sér grein fyrir því að það verða allir að koma að borðinu og leggja sitt af mörkum."

„En það er ekki bara leikmenn og starfsmenn sem þurfa að gefa eitthvað eftir, við þurfum öll sem félag að standa upp og berjast fyrir félagið okkar og leggja eitthvað af mörkum. Við munum reyna að halda öllum vel upplýstum þegar við vitum meira um hve skaðinn verður mikill. Oft hefur verið þörf að standa saman en nú er nauðsyn á samstilltu átaki," segir Reimar.

Öll íslensk félög eru að skoða rekstur sinn en áður hafði verið greint frá því að leikmenn KR, Vals, KA og ÍA hefðu tekið á sig launalækkanir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner