Franski sjónvarpsrisinn Canal Plus hefur gefið það út að hann muni ekki greiða þær 110 milljónir evra sem áttu að vera næstu greiðslur vegna sjónvarpssamnings í franska fótboltanum.
Ástæðan er einfaldlega sú að engir leikir eru spilaðir vegna heimsfaraldursins.
Maxime Saada, framkvæmdastjóri Canal Plus, segir að áskrifendum hafi snarfækkað og auglýsingasala sé í frjálsu falli.
Ástæðan er einfaldlega sú að engir leikir eru spilaðir vegna heimsfaraldursins.
Maxime Saada, framkvæmdastjóri Canal Plus, segir að áskrifendum hafi snarfækkað og auglýsingasala sé í frjálsu falli.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hversu gríðarlegur missir það er fyrir frönsk félög að fá ekki inn sjónvarpstekjur.
Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar óttast stórlega að sama muni eiga sér stað þar.
Athugasemdir