Alex Oxlade-Chamberlain, leikmaður Liverpool, á ekki orð yfir færni kærustu sinna, Perrie Edwards, í eldhúsinu og segir að hún sé listakokkur.
Oxlade-Chamberlain hefur verið í einangrun ásamt Perrie en hún er poppstjarna. Þau hafa verið saman síðan 2017.
Miðjumaðurinn öflugi hefur verið virkur á samfélagsmiðlum í sóttkvínni og meðal annars sýnt myndband af sér spila golf í rigningunni í garðinum.
Það hefur verið stjanað við hann.

„Hún hefur verið stórkostleg í útgöngubanninu. Hún er alvöru húsfrú. Hún hefur verið að taka til og eldað á hverjum degi. Maturinn hennar er ótrúlegur. Það fer ekki í taugarnar á henni þó ég spili Play Station. Hún er algjör toppur, ég elska hana," segir Oxlade-Chamberlain.
„Hún bjó til chorizo pasta í vikunni og það hitti beint í mark. Hún hefur mikil áhrif á mig og er rosaleg í eldhúsinu."
Oxlade-Chamberlain og félagar í Liverpool voru bara tveimur sigrum frá því að vinna enska meistaratitilinn þegar tímabilinu er frestað. Liðið er með 25 stiga forystu eftir 29 leiki.
Athugasemdir