Fotbolti.net
22.09.26 - 14:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bjarki Steinn á hækjum

Bjarki Steinn á hækjum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Landsliðsmaðurinn Bjarki Steinn Bjarkason meiddist í leik með liði sínu Südtirol í ítölsku B-deildinni um helgina. Hann fór af velli í hálfleik í útisigri Südtirol á Arezzo. Hann er í landsliðshópnum sem er kominn saman og undirbýr sig fyrir leiki í Þjóðadeildinni.

Bjarki Steinn, sem á að baki sjö A-landsleiki, er á hækjum og því verður að teljast ansi ólíklegt að hann geti tekið þátt í komandi landsleikjum.

Bjarki er 26 ára og hefur spilað sem hægri bakvörður í landsliðinu og var keyptur til Südtirol frá Venezia í sumar.
Ef það þarf að gera breytingu á landsliðshópnum er líklegt að horft verði til Dags Dans Þórhallssonar, Alfons Sampsted eða Valgeirs Lunddal Friðrikssonar sem hafa spilað sömu stöðu í landsliðinu.

Kandídatar í hægri bakvarðarstöðuna í hópnum eru ásamt Bjarka Steini þeir Guðlaugur Victor Pálsson, Mikael Egill Ellertsson og Mikael Neville Anderson. Mikael Anderson hefur spilað sem hægri vængbakvörður í AGF og landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson sagði í síðustu viku að það væri möguleiki að hann gæti leyst bakvarðarstöðuna.

Landsleikirnir framundan
Þjóðadeild karla - C-deild, riðill 4

laugardagur 26. september
16:00 Ísland-Eistland (Laugardalsvöllur)

þriðjudagur 29. september
18:45 Lúxemborg-Ísland (Stade de Luxembourg)

laugardagur 3. október
16:00 Ísland-Búlgaría (Laugardalsvöllur)

þriðjudagur 6. október
18:45 Eistland-Ísland (Lilleküla Stadium)
Bjarki Steinn á hækjum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.