Fotbolti.net
02.04.21 - 17:48
Brynjar Ingi Erluson

Barcelona vill fá De Ligt frá Juventus

Mathijs De Ligt

Mathijs De Ligt

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Barcelona ætlar að reyna við hollenska varnarmanninn Mathijs De Ligt í sumar en þetta kemur fram í spænskum fjölmiðlum.
Mino Raiola, umboðsmaður De Ligt, var í Barcelona á dögunum að ræða við félagið um Erling Braut Haaland en hann talaði einnig við félagið um stöðu De Ligt.

Hollenski varnarmaðurinn kom til Juventus frá Ajax árið 2019 en ítalska félagið hefur engan áhuga á því að selja hann.

Þrátt fyrir það ætlar Barcelona að reyna við hann í sumar en Ronald Koeman, þjálfari liðsins, vill fá tvo miðverði.

Eric Garcia kemur til félagsins frá Manchester City á frjálsri sölu og þá vill hann einnig bæta De Ligt í hópinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.