Fotbolti.net
02.04.24 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Banna númerið 44 á þýskri treyju því það líkist merki SS sveitanna

Banna númerið 44 á þýskri treyju því það líkist merki SS sveitanna
Canon

Mynd: Adidas

Adidas hefur bannað sölu á nýrri þýskri landsliðstreyju með númerinu 44.

Númerið þykir lýkjast merki sem SS sveitirnar notuðu á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar.

SS var stofnað sem einkavörður nasistaleiðtogans Adolf Hitler og urðu ein stærstu og valdamestu samtök í Þýskalandi nasismanns.

Talsmaður Adidas harðneitaði ásökunum um að þetta hafi verið hannað með merki SS í huga.

„Við sem fyrirtæki erum staðráðin í að standa gegn útlendingahatri, gyðingahatri, ofbeldi og hatri í hvaða mynd sem er,“ sagði hann.

Þá hefur varatreyja landsliðsins einnig verið gagnrýnd en hún er bleik. Stuðningsmenn segja að liturinn tákni fjölbreytileika landsins. En gagnrýnendur halda því fram að hún sé óhefðbundin og hafi eingöngu verið framleidd til að safna peningum fyrir þýska sambandið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.