Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 02. maí 2021 17:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Amanda skoraði sitt fyrsta mark fyrir norska meistaraliðið
Amanda í leik með U17 landsliði kvenna.
Amanda í leik með U17 landsliði kvenna.
Mynd: Getty Images
Hin 17 ára gamla Amanda Andradóttir heldur áfram að standa sig vel með Vålerenga í undirbúningsleikjum í Noregi.

Vålerenga, sem vann tvöfalt í Noregi í fyrra, spilaði æfingaleik við Lyn í gær. Amanda hefur mikið verið í byrjunarliði Vålerenga á undirbúningstímabilinu.

Amanda lagði upp tvö í æfingaleik á dögunum en í gær var hún á skotskónum.

Hægt er að sjá markið neðst í fréttinni en leikurinn endaði 3-1 fyrir Vålerenga.

Ingibjörg Sigurðardóttir er einnig á mála hjá Vålerenga en hún var besti leikmaðurinn í Noregi í fyrra. Hún er á leið í sitt annað tímabil með Vålerenga. Amanda er á leið inn í sitt fyrsta tímabil með félaginu eftir að hafa spilað með Nordsjælland í Danmörku í fyrra.

Amanda, sem er dóttir Andra Sigþórssonar og frænka Kolbeins Sigþórssonar, þykir gríðarlega efnileg en hún getur valið að spila á fyrir íslenska eða norska landsliðið. Hún hefur spilað fyrir yngri landslið Íslands.

Hægt er að lesa viðtal við Amöndu hérna.


Athugasemdir
banner