Það eru mikil mótmæli í gangi á Old Trafford nú rétt í þessu fyrir stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Stuðningsmenn Manchester United brutu sér leið inn á Old Trafford og standa í mótmælum við Glazer fjölskylduna.
Man Utd er í eigu Glazer fjölskyldunnar en hún er ekki vinsæl á meðal stuðningsmanna félagsins.
Talað var um að leiknum við Liverpool í dag gæti mögulega verið frestað en miðað við nýjustu fregnir stefnir ekki í það að svo stöddu.
Blaðamaðurinn Stan Collymore segir í nýjustu Twitter-færslu sinni að leikmönnum Liverpool hafi verið tjáð að undirbúa sig fyrir upphafs flaut klukkan 15:30.
Það gæti þó allt breyst á næstu mínútum og kemur í ljós.
BREAKING
— Stan Collymore (@StanCollymore) May 2, 2021
Liverpool held back at team hotel by GMP but told to prepare for 4:30pm KO as normal.
BREAKING.
— Stan Collymore (@StanCollymore) May 2, 2021
Liverpool FC told match will go ahead as planned.
Athugasemdir