Arnar Grétars: Eigum að geta gert betur en þetta
Auglýsing

Arnar Grétarsson, þjálfari KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Grétarsson, þjálfari KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það getur vel verið að við höfum átt skilið að vinna en ég vil samt meina að við vorum ekki alveg nógu góðir," sagði Arnar Grétarsson, þjálfari KA, eftir 3-2 endurkomusigur gegn Keflavík í Bestu deildinni.
„Mér fannst við ekki byrja af nægilega miklum krafti. Þegar við vorum að komast í góðar stöður í fyrri hálfleik þá vantaði oft upp á sendingar, ákvarðanatökur ekki nægilega góðar og þess háttar," sagði Arnar.
KA-menn voru undir á 86. mínútu en þeim tókst að knýja fram sigur í leiknum.
„Við eigum að geta gert betur en þetta, en maður tekur stigin þrjú," sagði Arnar.
Tvíburabræðurnir Nökkvi Þeyr og Þorri Mar Þórissynir skoruðu mörk KA í leiknum. „Þeir eru á sínum heimavelli," sagði Arnar, en drengirnir eru báðir uppaldir á svæðinu og stigu sínu fyrstu skref í fótboltanum á Dalvík.
KA er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki. Allt viðtalið má sjá í spilaranum fyrir ofan.