Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   mán 02. maí 2022 13:14
Elvar Geir Magnússon
Klopp: Ef ég væri yngri hefði ég orðið mjög reiður yfir þessari spurningu
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.
Mynd: Getty Images
Seinni leikur Villarreal og Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar verður annað kvöld. Liverpool er í góðum málum eftir 2-0 sigur í fyrri leiknum.

Á fréttamannafundi í dag var Klopp spurður að því hvort liðið væri búið að tryggja sér sæti í úrslitaleiknum?

„Ef ég væri yngri hefði ég orðið mjög reiður yfir þessari spurningu," sagði Klopp.

„Auðvitað er einvíginu ekki lokið, það er bara hálfleikur. Við þurfum að mæta í leikinn og reyna að vinna. Villarreal mun gefa allt sem það á í leikinn."

„Við þurfum að spila eins og við gerum best. Villarreal mun nálgast þennan leik á sínum heimavelli á annan hátt en fyrri leikinn."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner