Kane orðaður við Barcelona - Greenwood til Roma? - Ederson á leið til Man Utd
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   lau 02. maí 2026 21:12
Snæbjört Pálsdóttir
Bryndís Rut hreinskilin eftir stórt tap: „Markmiðið er að halda okkur í deildinni“
Kvenaboltinn
Tindastóll er með ungt og breytt lið frá síðasta tímabili.
Tindastóll er með ungt og breytt lið frá síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tindastóll tapaði 8-2 gegn Keflavík á heimavelli í dag en fyrirliðinn Bryndís Rut Haraldsdóttir var hreinskilin eftir leik og sagði liðið reynslulítið og hafi átt erfitt með að bregðast við breytingum gestanna í síðari hálfleik.

„Fyrstu viðbrögð eru bara aðeins að horfa yfir leikinn. Mér fannst fyrri hálfleikurinn bara allt í lagi. Við brugðumst alveg frekar vel varnarlega við þeim þar.“


Lestu um leikinn: Tindastóll 2 -  8 Keflavík

Keflavík tók yfir leikinn í seinni hálfleik og Bryndís segir liðið hafa lent í vandræðum eftir taktískar breytingar hjá Keflavík.

„Svo kemur seinni hálfleikur og mér fannst bara sniðugt hjá þjálfaranum, breytir um kerfið og tekur okkur svolítið úr jafnvægi og við bara bregðumst ekki nógu vel við að mínu mati. Við kannski, ég veit ekki hvort maður eigi að segja það, það er pínu reynsluleysi hjá okkur að geta ekki bara brugðist við þessi og það sést svolítið þarna.“

Tindastóll er með ungt og breytt lið frá síðasta tímabili og viðurkennir Bryndís að undirbúningurinn hafi haft áhrif.

„Stemmingin í hópnum er nú alveg búin að vera upp og niður, ég get alveg verið hreinskilin. Bara út frá því að undirbúningstímabilið var erfitt. Ég held að fólk hafi nú alveg séð það að við drógum okkur úr lengjubikarnum, það setur alveg smá toll á þetta. Við höfum fengið fáa æfingaleiki og sást bara aðeins í dag, viðurkenni það alveg.“

Hún leggur þó áherslu á jákvæðu hliðarnar.

„Ungir leikmenn að fá sénsa hérna og maður getur ekki annað en horft á það jákvæða í því. Maður vill að þær fái sitt platform og fái að taka skref hérna.“

Tindastóll missti stóran hluta liðsins frá síðasta tímabili og segir Bryndís mikilvægt að fá inn fleiri leikmenn.

„Hvað ætli við höfum misst marga leikmenn frá því í fyrra, 12 eða eitthvað. Það er allavega eiginlega bara heilt byrjunarlið sko þannig að mér finnst svolítið crusial að fá inn einhverja leikmenn í staðinn.“

„Við þurfum breidd og það verður bara gaman að sjá þessa tvo erlendu leikmenn þegar þeir koma sko.“

Þrátt fyrir erfiða byrjun segir Bryndís markmið liðsins skýr.

„Ég segi að okkar markmið er að halda okkur í deildinni sko. Ég er bara að vera raunsæ og raunhæf og segja þetta eins og það er.“

„Það voru einhverjar yfirlýsingar í haust að við ætluðum upp í efstu deild en eins og fólk veit eða hefur heyrt þá hefur náttúrulega bara ýmislegt gengið á í vetur, þjálfaravesen og ýmislegt sko.“

„Reyna að halda uppbyggingu áfram hjá Tindastól af því að það er að koma upp hópur og ég vill sjá okkur vera í lengjudeildinni áfram allavega.“


Slapp
banner
banner