Fotbolti.net
22.11.26 - 11:26
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Fabregas vill ekki að Paz taki við tíunni hjá Argentínu

Nico Paz

Nico Paz

Canon

Mynd: EPA

Cesc Fabregas, þjálfari Como á Ítalíu, vill ekki að Lionel Scaloni og argentínska fótboltasambandið setji of mikla pressu á Nico Paz með því að afhenda honum treyju númer tíu hjá landsliðinu.
Tveir berjast um að taka við tíunni af Messi
TENGT EFNI

Tveir berjast um að taka við tíunni af Messi

Paz er einn besti sóknartengiliður heims um þessar mundir og er talinn líklegastur til að taka við tíunni hjá Argentínu eftir að Lionel Messi lagði landsliðsskóna á hilluna.

Paz hefur komið að fjórtán mörkum í fimmtán leikjum með Como á tímabilinu og er potturinn og pannan í sóknarleik liðsins. Fabregas telur hins vegar að það væri rangt að leggja þá miklu ábyrgð á herðar hans að taka við treyju Messi.

„Látið hann í friði. Tían tilheyrir Messi og engum öðrum. Það á að hengja þessa treyju upp í rjáfur,“ sagði Fabregas við TuttoMercatoWeb.

Lautaro Martínez, framherji Inter, hefur einnig verið nefndur sem mögulegur arftaki Messi, en Paz er þó talinn líklegri til að hreppa treyjuna.

Enginn leikmaður klæddist treyju númer tíu í síðasta landsleikjaglugga, enda vildi Scaloni gefa sér tíma til að ákveða hver fengi það stóra hlutverk að taka við þessari sögufrægu treyju.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.