22.11.26 - 11:56
Brynjar Ingi Erluson
Segir meiðsli Doue mjög alvarleg

PSG hefur misst Doue og Kvaratskhelia í löng meiðsli

Mynd: EPA

Franski landsliðsmaðurinn Desire Doue verður líklega ekki meira með Paris Saint-Germain á þessu tímabili eftir að hafa orðið fyrir alvarlegum meiðslum gegn Nice í frönsku deildinni í gær.

TENGT EFNI
PSG þarf nýjan sóknarmann eftir meiðsli Doué
Grunur leikur á að Doue hafi slitið krossband í leiknum og ef það reynist rétt verður hann annar sóknarmaður PSG til að verða fyrir slíkum meiðslum á tímabilinu, en Khvicha Kvaratskhelia sleit krossband í síðasta mánuði.
Luis Enrique, þjálfari PSG, segir ljóst að meiðslin séu alvarleg og félagið íhugar nú að styrkja sóknarlínuna þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
„Við verðum að bíða eftir niðurstöðum úr rannsóknum á morgun (í dag), en það er alveg ljóst að þetta eru alvarleg meiðsli. Hann er auðvitað leiður og áhyggjufullur, en svona er fótboltinn. Þetta er eitthvað sem maður verður að sætta sig við og ég er viss um að hann kemur enn sterkari til baka.“
„Við skoðum alltaf þá möguleika sem bjóðast á félagaskiptamarkaðnum, en við munum líka takast á við þetta saman sem lið,“ sagði Enrique.