22.11.26 - 11:38
Brynjar Ingi Erluson
Kominn með fjögur mörk á aðeins 62 mínútum

Carlos Espí hefur skorað þrjú sigurmörk á tímabilinu

Mynd: EPA

Spænski framherjinn Carlos Espí heldur áfram að nýta mínúturnar sem Jose Mourinho gefur honum hjá Real Madrid til hins ýtrasta, en hann var hetja liðsins í 2-1 sigri á Celta Vigo í La Liga í gær.

TENGT EFNI
Spánn: Mbappé klúðraði víti áður en Espí bjargaði sigri
Espí er 21 árs gamall og gekk til liðs við Madrídinga frá Levante í sumar. Hann hefur fengið fá tækifæri til að láta ljós sitt skína, en heldur betur nýtt þær mínútur sem hann hefur fengið.
Hann hefur aðeins spilað 43 mínútur í deildinni en samt tekist að skora þrjú sigurmörk. Í öllum keppnum hefur hann skorað fjögur mörk á aðeins 62 mínútum, sem er hreint ótrúleg tölfræði.
Framherjinn var spurður út í leyndarmálið á bak við þessa mögnuðu markaskorun og var svarið einfalt.
„Leyndarmálið mitt? Ég geri bara það sem Jose Mourinho segir mér að gera. Mig hefur dreymt um augnablik eins og þessi,“ sagði Espí.
Mourinho er greinilega mikill aðdáandi unga framherjans, þótt hann hafi enn sem komið er ekki gefið honum margar mínútur.
„Í sumar fékk ég lista frá félaginu með fjórum eða fimm framherjum sem ég gat valið úr. Ég sagði einfaldlega: 'Ég vil Carlos Espí',“ sagði Mourinho.
Það stendur þó ekki til hjá Mourinho að tefla Espí og Kylian Mbappe fram saman í fremstu víglínu og hafði hann ágæta ástæðu fyrir því.
„Jújú, ég gæti alveg spilað þeim saman, en þá þyrfti ég sjálfur að hlaupa inn á völlinn og sparka andstæðinginn niður í hvert skipti sem við töpuðum boltanum og þeir færu í skyndisókn. Til þess að þetta gangi upp þurfa vængmennirnir okkar að vera mjög duglegir að koma inn á miðjuna og verjast. Það eru ekki styrkleikar Vini eða Diomande, kannski frekar Arda eða Brahim. Með þá vængmenn sem við höfum getum við einfaldlega ekki spilað hefðbundið 4-4-2,“ sagði Mourinho.