Fotbolti.net
22.11.26 - 12:12
Brynjar Ingi Erluson
Franska deildin

PSG staðfestir slæm tíðindi af Doue - Fer í aðgerð á næstu dögum

PSG staðfestir slæm tíðindi af Doue - Fer í aðgerð á næstu dögum
Canon

Mynd: EPA

Evrópumeistarar Paris Saint-Germain hafa staðfest það sem óttast var, að Desire Doue hafi slitið krossband í hné í leik liðsins gegn Nice í frönsku deildinni í gær.
Segir meiðsli Doue mjög alvarleg
TENGT EFNI

Segir meiðsli Doue mjög alvarleg

Doue skoraði fyrir PSG í 3-2 sigri liðsins, en undir lok fyrri hálfleiks varð hann fyrir alvarlegum meiðslum.

Eftir leikinn sagði Luis Enrique, þjálfari PSG, að meiðslin virtust alvarleg, en að bíða þyrfti eftir niðurstöðum úr frekari rannsóknum.

PSG hefur nú staðfest að Doue hafi slitið krossband og að tímabilinu sé því lokið hjá honum. Hann er annar sóknarmaður liðsins sem verður fyrir slíkum meiðslum á tímabilinu, en Khvicha Kvaratskhelia hefur einnig slitið krossband.

Doue mun gangast undir aðgerð á næstu dögum og í kjölfarið tekur við langt endurhæfingarferli.

Franski landsliðsmaðurinn hafði skorað sex mörk og lagt upp önnur fjögur áður en hann meiddist. PSG er nú orðið ansi fáliðað á vængjunum og þarf að treysta á unga og efnilega leikmenn til að fylla skarðið, að minnsta kosti þar til félagaskiptaglugginn opnar í janúar.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.