02.06.17 - 14:57
Elvar Geir Magnússon
Heimir Hallgríms: Við eigum völina og kvölina
Auglýsing

Heimir telur að við séum að nálgast Króatana meira og meira.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta er bara úrslitaleikur um það hvort Ísland geti spilað um efsta sætið í riðlinum,\" segir Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari um leikinn gegn Króötum þann 11. júní á Laugardalsvelli.
„Þessi hópur hefur yfirleitt stigið upp þegar verkefnið er stórt og vonandi verður það þannig. Króatía er erfiður andstæðingur og með gríðarlega góða leikmenn sem spila í aðalhlutverkum með stærstu liðum heims. Þeir eru góð liðsheild, með vinnusamt lið auk þess að vera með mikla einstaklingshæfileika.\"
„Við teljum okkur vera að nálgast Króatana meira og meira. Við höfum þokkalega mikla reynslu af því að spila gegn þeim. Strákarnir hafa aldrei verið hræddir við neitt verkefni. Það er er ekkert verkefni of stórt fyrir þá.\"
„Við berum virðingu fyrir skoðun annarra, við eigum völina og kvölina. Við tökum þessa ákvörðun og hún er metin út frá því sem við teljum best fyrir íslenska landsliðið í þetta verkefni. Þetta er engin höfnun.\"
Margir eru með skoðanir á því hverjir eiga að koma inn í hópinn en erfitt er að segja hverjir eigi að fara út.
„Það er auðvelt að gagnrýna að þessi sé ekki en henda ekki öðrum út í staðinn. Það er ekki eins vinsælt og auðvelt. Ég vona að þjóðin flykkist á bak við þessa stráka sunnudaginn 11. júní,\" segir Heimir en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.