22.07.26 - 19:43
Brynjar Ingi Erluson
Ólíklegt að Trafford fari til Newcastle

Newcastle er ekki reiðubúið að borga 50 milljónir fyrir Trafford

Mynd: EPA

Áhugi Newcastle United á James Trafford, markverði Manchester City og enska landsliðsins, hefur kólnað á undanförnum vikum og fátt bendir til þess að hann gangi til liðs við félagið í sumar.
Newcastle sýndi Trafford mikinn áhuga í upphafi sumars og átti í viðræðum við Manchester City um markvörðinn.
City setti hins vegar 50 milljóna punda verðmiða á Trafford og í kjölfarið kólnaði áhugi Newcastle.
Samkvæmt Chronicle Live hefur Newcastle ekkert rætt við Manchester City síðan heimsmeistaramótinu lauk. Þá hefur nafn Trafford ekki komið til umræðu á fundum stjórnar félagsins.
Trafford, sem var í enska landsliðshópnum á HM, er einnig á óskalista Aston Villa, Leeds og Juventus.
Newcastle leitar áfram að markverði en mun hefja undirbúningstímabilið með Nick Pope sem aðalmarkvörð og Ewan Jaouen honum til halds og trausts.
Félaginu hefur einnig boðist að fá japanska landsliðsmarkvörðinn Zion Suzuki frá Parma en hefur ekki enn lagt fram tilboð í hann.