22.07.26 - 20:03
Brynjar Ingi Erluson
Albert skoraði sigurmark Fiorentina

Albert fagnar marki sínu gegn Gubbio

Mynd: Fiorentina

Albert fagnar marki sínu gegn Gubbio

Mynd: Fiorentina
Albert Guðmundsson skoraði eina mark Fiorentina í 1-0 sigri á Gubbio í æfingaleik í dag.
Fiorentina lék sinn annan æfingaleik á undirbúningstímabilinu í dag eftir að hafa unnið 8-1 sigur á unglinga- og varaliði félagsins á dögunum.
Annar sigurinn leit dagsins ljós gegn ítalska C-deildarliðinu Gubbio.
Albert skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Hann var svellkaldur á punktinum, sendi markvörðinn í rangt horn og tryggði Fiorentina sigurinn. Öryggið uppmálað.
Logi Tómasson byrjaði hjá Samsunspor, sem tapaði 2-1 fyrir franska liðinu Dunkerque í æfingaleik.
Viðar Ari Jónsson sat allan tímann á varamannabekknum þegar HamKam tapaði 3-0 fyrir Bodo/Glimt í norsku úrvalsdeildinni. HamKam er í áttunda sæti með 18 stig eftir þrettán umferðir.

Com vocês, o primeiro gol da Fiorentina 26/27, por Albert Gudmundsson. pic.twitter.com/HaWelYFw0S
— Diário Viola BR ?????????? (@DiarioViolaBR) July 22, 2026