Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 02. júní 2022 11:52
Elvar Geir Magnússon
Real Madrid kynnir Rudiger (Staðfest)
Antonio Rudiger á landsliðsæfingu með Þýskalandi.
Antonio Rudiger á landsliðsæfingu með Þýskalandi.
Mynd: Getty Images
Antonio Rudiger er formlega orðinn leikmaður Real Madrid en Spánar- og Evrópumeistararnir hafa tilkynnt um fjögurra ára samning við þýska varnarmanninn sem kemur á frjálsri sölu frá Chelsea.

Chelsea reyndi að halda þessum 29 ára miðverði en hann hafnaði tilboðum enska félagsins.

Rudiger var mjög eftirsóttur en það er talsvert síðan það var ljóst að hann myndi ganga í raðir Madrídarliðsins.

Rudiger er í landsliðsverkefni með Þýskalandi og verður formlega kynntur hjá Real Madrid seinna í þessum mánuði, þar sem hann mun sitja fyrir svörum á fréttamannafundi og spóka sig um á Santiago Bernabeu.


Athugasemdir
banner
banner
banner