Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
   þri 02. júní 2026 14:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraká
Á sama svæði og enskt úrvalsdeildarfélag
Eimskip
Frá æfingu Íslands í dag.
Frá æfingu Íslands í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Íslenska kvennalandsliðið er mætt til Kraká í Póllandi þar sem liðið mun etja kappi við Úkraínu í mikilvægum leik í undankeppni HM á föstudag.

Stelpurnar komu allar til Póllands í gær tóku sína fyrstu æfingu þar í landi í morgun. Æfingin gekk vel og tóku allir leikmenn þátt í henni, þó mismikið.

Á meðan stelpurnar eru úti í Póllandi þá nota þær æfingasvæði Garbarnia Kraków en lið félagsins leikur í fimmtu efstu deild í Póllandi.

Samt sem áður er æfingasvæði félagsins hið fínasta og segir það sitt að enska úrvalsdeildarfélagið Crystal Palace kaus að æfa hérna fyrir 1-3 sigur gegn Shakhtar Donetsk í Sambandsdeildinni á dögunum. Palace endaði á því að vinna keppnina.

Stelpurnar munu æfa á vellinum næstu daga og svo er leikurinn gegn Úkraínu á föstudaginn.

Fótbolti.net er á staðnum en á eftir koma inn viðtöl á síðuna við leikmenn kvennalandsliðsins.



Slapp
banner
banner