Hugur Martial leitar heim eftir að hafa rift í Mexíkó

Í leik með Monterrey.

Mynd: EPA

Í leik með Monterrey.

Mynd: EPA
Franski framherjinn Anthony Martial hyggst snúa aftur til heimalandsins eftir misheppnaða dvöl hjá Monterrey í Mexíkó.
Martial rifti samningi sínum við mexíkóska félagið á dögunum en samningurinn var í gildi út næsta tímabil.
Hann gekk til liðs við Monterrey í haust og spilaði 20 leiki en náði aðeins einu sinni að koma sér á blað.

Franskir fjölmiðlar greina frá því að hugur Martial leiti heim en eina sem stæði í vegi fyrir að lið sækji framherjann eru háar launakröfur.
Martial er eflaust góðu vanur en hann er þekktastur fyrir tímann sinn hjá Man Utd og Monaco.