Næstyngsti markaskorari í sögu efstu deildar - „Tímaspursmál hvenær markið kæmi“

Arnar var 15 ára, sjö mánaða og níu daga gamall í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alexander Rafn er handhafi metsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar var 15 ára, sjö mánaða og níu daga gamall í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Bjarki Gunnleifsson varð næstyngsti markaskorari í sögu efstu deildar er hann skoraði þriðja mark Breiðabliks í 3-1 sigri á KA í gær.
Óskar Ófeigur Jónsson fjallar um afrek Arnars á Vísi en með marki gærkvöldsins komst hann upp fyrir Eið Smára Guðjohnsen, sem var handhafi metsins í 31 ár.
Alexander Rafn Pálmason sló met Eiðs í fyrra er hann skoraði gegn ÍBV í fyrra, þá 15 ára, eins mánaðar og þriggja daga gamall.
Arnar hefur verið undir smásjá danskra liða og farið á reynslu til bæði Nordsjælland og Midtjylland en er sagður á leið til Bröndby.

„Arnar hefur lagt gríðarlega hart að sér í vetur og á framtíðina fyrir sér. Ég er þakklátur fyrir hans hönd að hann sé að uppskera. Við höfum svo sannarlega trú á honum og vitum hvað hann getur.
Það er frábært fyrir hann að ná inn marki, tímaspursmál hvenær það kæmi. Gott að það kom í dag,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, aðspurður um Arnar eftir leik í gær.
Það er frábært fyrir hann að ná inn marki, tímaspursmál hvenær það kæmi. Gott að það kom í dag,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, aðspurður um Arnar eftir leik í gær.
Hinn fimmtán ára gamli Arnar Bjarki Gunnleifsson skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild er hann gulltryggði sigur Breiðabliks! ?????? #bestadeildin pic.twitter.com/BqQaqM0Eqf
— Besta deildin (@bestadeildin) June 21, 2026

Alexander Rafn er handhafi metsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð