Fotbolti.net
22.06.26 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Átta leikmenn sem komu heim til að lyfta félaginu sínu upp

Sara Björk samdi við Lengjudeildarlið Hauka.

Sara Björk samdi við Lengjudeildarlið Hauka.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stórir prófílar sem snúa heim hafa lengi verið meðal stærstu tíðinda íslenska fótboltans. Sumir koma aftur til að lyfta uppeldisfélaginu sínu á erfiðum tímum, aðrir snúa heim þegar uppeldisfélagið er að berjast á toppnum og enn aðrir velja aðra leið með því að semja við annað lið en það sem þeir ólust upp hjá.

Í samantekt sem birtist hér á Fótbolta.net í morgun voru taldir upp leikmenn sem komu heim í uppeldisfélagið sitt þegar það var ekki, eða átti ekki að vera, á meðal bestu liða landsins. Skoðum það aðeins betur.
Sara ræðir heimkomuna - „Var í Lyon þegar Dóri spyr mig fyrst hvort ég sé að koma heim“
TENGT EFNI

Sara ræðir heimkomuna - „Var í Lyon þegar Dóri spyr mig fyrst hvort ég sé að koma heim“

Sara Björk Gunnarsdóttir í Hauka (2026)
Það var risastór dagur á Ásvöllum í byrjun mánaðarins þegar Sara Björk samdi við Hauka og tilkynnt sem leikmaður félagsins á fréttamannafundi í nýju knatthúsi Hauka. Hún er ástæðan fyrir því að hugmyndin að þessari frétt vaknaði. Sara átti magnaðan atvinnumannaferil og var lengi fyrirliði landsliðsins en snýr núna heim og á að lyfta upp öllu fótboltastarfi hjá Haukum. Hún mun byrja í Lengjudeildinni með Haukum í næsta mánuði og verður mjög áhugavert að fylgjast með því.

Jón Daði Böðvarsson í Selfoss (2025)
Eins og með Söru, þá ákvað Jón Daði að snúa aftur heim í uppeldisfélagið sitt þrátt fyrir að það væri ekki í efstu deild. Selfoss var í fallbaráttu í Lengjudeildinni þegar Jón Daði ákvað að semja við félagið sem hann ólst upp hjá. Jón Daði kom heim eftir magnaðan feril og sérstaklega með landsliðinu þar sem hann spilaði mjög stórt hlutverk í landsliðinu sem fór á tvö stórmót. Á atvinnumannaferli spilaði hann lengst af í neðri deildunum á Englandi. Það hefur ekki gengið sem skyldi eftir endurkomuna á Selfoss en liðið féll niður í 2. deild, en samt ákvað Jón Daði að halda tryggð við félagið.

Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen í Víking (2017-2018)
Sölvi Geir samdi við Víking veturinn 2017 og nokkrum mánuðum síðar var Kári búinn að semja við félagið. Saman eiga þeir stóran þátt í þeim ótrúlega uppgangi sem hefur átt sér stað hjá félaginu síðustu ár og erfitt að ímynda sér alla þessa velgengni án þeirra. Þeir kláruðu báðir ferilinn með titlum í Fossvogi og hafa eftir að leikmannaferlinum lauk farið í mismunandi hlutverk hjá félaginu sem ól þá upp. Kári gerðist yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi eftir að hann lagði skóna á hilluna og Sölvi gerðist aðstoðarþjálfari liðsins. Síðar tók Sölvi við liðinu eftir að Arnar Gunnlaugsson gerðist landsliðsþjálfari. Í dag eru Víkingar langbesta lið landsins og þeir tveir halda utan um stjórnartaumana.

Arnar Grétarsson í Breiðablik (2006)
Arnar gekk í raðir Breiðabliks um mitt sumarið 2006 eftir að hafa verið hjá Lokeren í Belgíu nokkur ár. Arnar hafði einnig spilað með AEK Aþenu í Grikklandi um nokkurra ára skeið. Hann var svo gerður að fyrirliða Blika sumarið 2007 og var einn albesti miðjumaður landsins eftir heimkomuna. Arnar fór í lið sem hafði komist upp í efstu deild og átti hjálp í því að leggja grunninn að Blikaliði framtíðarinnar sem varð svo Íslandsmeistari 2010.

Helgi Sigurðsson í Fram (2005)
„Ég er maður áskorananna," sagði Helgi Sigurðsson í viðtali við Fótbolta.net í október 2009. Það var svo sannarlega áskorun þegar hann ákvað að ganga í raðir Fram fyrir tímabilið 2006 eftir mörg ár í atvinnumennsku. Helgi var kynntur til sögunnar sem leikmaður Fram nánast daginn eftir að liðið féll niður í næst efstu deild. Helgi er uppalinn í Víkingi en spilaði með Fram áður en hann fór í atvinnumennsku og er það greinilega félag sem nálægt hjarta hans. Hann hjálpaði Fram að komast beint aftur upp og var leikmaður ársins í 1. deildinni. Hann samdi svo við Val þar sem hann vildi verða Íslandsmeistari og það varð raunin.

Guðni Bergsson í Val (1994)
Guðni fór ungur að árum til Tottenham og spilaði þar með leikmönnum á borð við Paul Gascoigne og Gary Lineker. Hann var ekki inn í myndinni hjá Spurs árið 1994 og ákvað að koma heim og leika með Val um sumarið. Hann átti geggjað sumar með Val og var valinn í lið ársins í efstu deild ásamt því að fá nokkur atkvæði sem leikmaður ársins. Valur hafði endað í sjötta sæti árið áður en Guðni kom heim en tók skref upp á við eftir komu hans. Guðni fór svo aftur út og samdi við Bolton þar sem hann varð goðsögn og spilaði lengi í ensku úrvalsdeildinni.

Sigurður Jónsson í ÍA (1992)
Þegar Sigurður Jónsson sneri heim á Akranes vorið 1992 var hann nýkrýndur Englandsmeistari með Arsenal. Fáar heimkomur í sögu íslenska fótboltans hafa verið jafn óvæntar enda var Sigurður aðeins 25 ára gamall og á hátindi ferils síns. Erfið meiðsli neyddu hann hins vegar til að leggja atvinnumennskuna tímabundið á hilluna og snúa aftur í uppeldisfélagið. Sigurður gekk til liðs við nýliða ÍA, en með honum innanborðs varð liðið Íslandsmeistari ári eftir að liðið komst upp úr næst efstu deild. Sigurður var einfaldlega leikmaður sem hefði aldrei átt að spila í íslensku deildinni á þessum tímapunkti á ferlinum. Sumarið 1993 var Sigurður besti leikmaður liðs sem margir telja enn í dag vera besta félagslið í sögu íslenska boltans. ÍA varð tvöfaldur meistari, setti nýtt markamet og lagði grunninn að einu glæsilegasta tímabili sem íslenskt lið hefur átt.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 22. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Frá Pétri til Söru Bjarkar: Hvaða heimkoma er stærst?
TENGT EFNI

Frá Pétri til Söru Bjarkar: Hvaða heimkoma er stærst?

Jón Daði fór í Selfoss sem nú spilar í 2. deild.

Jón Daði fór í Selfoss sem nú spilar í 2. deild.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári og Sölvi eiga stóran þátt í því að Víkingur er nú það stórveldi sem það er.

Kári og Sölvi eiga stóran þátt í því að Víkingur er nú það stórveldi sem það er.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Grétarsson.

Arnar Grétarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi Sig fór í Fram í 1. deild.

Helgi Sig fór í Fram í 1. deild.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Guðni Bergs fór úr ensku úrvalsdeildinni í Val.

Guðni Bergs fór úr ensku úrvalsdeildinni í Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Siggi Jóns fór í nýliða ÍA og spilaði stóran þátt í nokkrum Íslandsmeisturum.

Siggi Jóns fór í nýliða ÍA og spilaði stóran þátt í nokkrum Íslandsmeisturum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.