Liverpool hafnaði öðru tilboði - Vilja 35 milljónir punda


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Liverpool hefur hafnað öðru tilboði frá Inter í miðjumanninn Curtis Jones. Frá þessu greinir The Athletic. Í þetta skiptið var um munnlegt tilboð að ræða og var það betra en 25 milljóna evra tilboðið sem Liverpool hafnaði fyrst.
Liverpool metur Jones á um 35 milljónir punda og því ljóst að ítölsku meistararnir þurfa að hækka sig vel.
Liverpool metur Jones á um 35 milljónir punda og því ljóst að ítölsku meistararnir þurfa að hækka sig vel.
Jones er 25 ára enskur miðjumaður sem er uppalinn hjá Liverpool. Hann á að baki sex A-landsleiki og kom við sögu í 49 leikjum á liðnu tímabili.
Jones er sagður áhugasamur um mögulegt skref til Ítalíu og hefur framtíð hans hjá Liverpool verið til umræðu innan félagsins síðustu vikur.
Jones er sagður áhugasamur um mögulegt skref til Ítalíu og hefur framtíð hans hjá Liverpool verið til umræðu innan félagsins síðustu vikur.





