Fotbolti.net
22.06.26 - 15:59
Elvar Geir Magnússon

Veðrið gæti truflað leiki kvöldsins á HM

Stuðningsmenn Noregs vona það besta.

Stuðningsmenn Noregs vona það besta.

Canon

Mynd: EPA

Enn sem komið er hafa veðurguðirnir ekki orðið til þess að neinar frestanir hafa verið á leikjum heimsmeistaramótsins. Það gæti þó breyst í kvöld.

Leikirnir sem eiga á hættu að verða fyrir truflunum vegna veðurs eru Frakkland - Írak sem verður 21:00 í Philadelphiu að íslenskum tíma og svo Noregur - Senegal í New Jersey sem verður á miðnætti.

Spáð er mikilli rigningu, mögulegu þrumuveðri og hugsanlegri flóðahættu á svæðinu í kringum MetLife-leikvanginn í New Jersey samkvæmt viðvörun frá veðurstofu Bandaríkjanna. Spáð er stormi og mikilli úrkomu í Philadelphiu.
HM í dag - Þrjár þjóðir geta bókað sæti í 32-liða úrslitum
TENGT EFNI

HM í dag - Þrjár þjóðir geta bókað sæti í 32-liða úrslitum

Fyrsti leikur dagsins á HM verður viðureign Argentínu og Austurríkis sem hefst klukkan 17:00. Sá leikur verður spilaður undir þaki í Texas og engin hætta á frestun eða töfum vegna veðurs þar.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.