Fotbolti.net
22.06.26 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Alexander Graham Bell að finna upp símann dæmi"

Einstakir skór.

Einstakir skór.

Canon

Mynd: Instagram

Á stórmótum á borð við HM er hvert smáatriði vandlega úthugsað. Búningar, hárgreiðslur og fagnaðarlæti vekja athygli, en fátt er jafn sýnilegt og skórnir sjálfir. Þeir eru orðnir hluti af ímynd leikmanna, markaðssetningu framleiðenda og menningu fótboltans.

Fréttamaður Fótbolta.net ræddi á dögunum við Andra Geir Gunnarsson úr hlaðvarpinu Steve Dagskrá og Benedikt Almar Bjarkason, eiganda Boltamannsins, um þróunina á HM í ár, áhrif stórmóta á skósölu og þá skó sem hafa skilið eftir sig dýpstu sporin í sögu heimsmeistaramótsins.
Fyrir fótboltaáhugafólk eru ákveðnir takkskór órjúfanlegur hluti af minningum um heimsmeistaramót.

Þegar kemur að uppáhaldsskónum stendur einn upp úr hjá Andra sem er mikill áhugamaður um takkaskó.

„Já, það toppar ekkert þegar Ronaldo mætti til Frakklands í Mercurial R9 árið 1998. Alexander Graham Bell að finna upp símann dæmi," sagði Andri.

Gull- og bláu Mercurial-skórnir sem brasilíska goðsögnin klæddist á HM 1998 eru enn í dag taldir meðal áhrifamestu takkskóa sögunnar.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 20. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Hvað er málið með bleiku skóna á HM?
TENGT EFNI

Hvað er málið með bleiku skóna á HM?

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.