Fotbolti.net
22.06.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gunnar Orri æfir með aðalliði FCK

Gunnar Orri æfir með aðalliði FCK
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

U19 landsliðsmaðurinn Gunnar Orri Olsen hefur verið færður upp í aðallið FC Kaupmannahafnar og mun æfa með liðinu á undirbúningstímabilinu sem hófst í gær og var fyrsta æfing utandyra í dag. Hann er einn af sex úr akademíunni sem mun æfa með aðalliðinu þar til U19 liðið byrjar að æfa seinna í sumar.

Gunnar Orri er fæddur árið 2008 og hefur verið í unglingaliðum danska stórliðsins síðustu ár.

Kantmaðurinn vann tvennuna með U19 liði FCK á liðnu tímabili; deildina og bikarinn og var valinn maður leiksins í bikarúrslitaleiknum.
Gunnar Orri skrifar undir langtímasamning við FCK - „Ekki áætlunin að þetta hætti hér"
TENGT EFNI

Gunnar Orri skrifar undir langtímasamning við FCK - „Ekki áætlunin að þetta hætti hér"

Gunnar Orri er uppalinn í Stjörnunni og hefur þegar spilað 28 leiki fyrir yngri landsliðin. Í þeim hefur hann skorað sjö mörk.

Gunnar fær stutt sumarfrí því einungis eru rúmar tvær vikur frá því að hann spilaði bikarúrslitaleikinn með U19 liði FCK og í kjölfarið fór hann í verkefni með U19 landsliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.