Fotbolti.net
22.06.26 - 13:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Af bekknum á Selfossi í byrjunarliðið í Bestu

Vinstri kantmaðurinn er að gera vel í Eyjum.

Vinstri kantmaðurinn er að gera vel í Eyjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður mjög vel eftir leikinn í gær, flottur sigur. Ég myndi segja að lykillinn að sigrinum í gær hafi verið viljinn; við vorum vel gíraðir fyrir leikinn og ákveðnir," segir Sesar Örn Harðarson, leikmaður ÍBV, eftir endurkomusigurinn gegn Stjörnunni í gær.

Sesar skoraði jöfnunarmark ÍBV í leiknum og var það hans þriðja mark í Bestu deildinni í sumar. Stjarnan komst mjög snemma yfir í leiknum en Eyjamenn svöruðu með tveimur mörkum áður en fyrri hálfleikurinn var úti. Það var Bjarki Björn Gunnarsson sem skoraði sigurmarkið.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 1 Stjarnan
„Ég var ekkert stressaður þegar þeir skoruðu snemma. Ég vissi alltaf að við værum að fara að skora og það var mjög mikilvægt að ná að gera það svona snemma. Ég var meira stressaður um að ná ekki að klára leikinn. Við lágum í vörn alveg undir lokin og ég var alveg stressaður þá, en við vorum vel þéttir og héldum þessu út."

Byrjuðu að trúa
Sigurinn var sá þriðji í röð hjá ÍBV og fjórði leikurinn án taps.

„Það sem breyttist hjá okkur er að við byrjuðum að trúa. Við vorum að spila vel en ekki að ná inn úrslitum, en núna eru þau að koma eftir erfiða byrjun."

Las stöðuna hárrétt
Hvernig var markið í gær?

„Ég sé að boltinn er að detta fyrir Alex á miðjunni og næ að lesa það. Ég næ að stinga mér í gegn og eftir þessa frábæru sendingu frá Lexa þurfti ég bara að skora," segir markaskorarinn. Hægt er að sjá markið í færslunni neðst.

Líður vel í Eyjum og gott að ná inn mörkum
Sesar kom til Vestmannaeyja frá Selfossi í vetur og hefur byrjað átta leiki í Bestu í sumar. Hvernig hafa mánuðirnir í Eyjum verið?

„Mér líður bara mjög vel með fyrstu mánuðina í Eyjum. Það hefur verið smá erfitt upp á siglingar Herjólfs að gera og að hafa ekki fengið æfingaleiki fyrir mót."

„Ég er mjög ánægður með hlutverk mitt og að ég sé byrjaður að ná inn mörkum."


Mjög næs að spila með Róberti
Hvernig er að spila með Róberti Elís Hlynssyni frammi?

„Það er mjög næs að hafa framherja sem vinnur 90% af skölluðum boltum og er með geðveikar sendingar, þannig að það er mjög næs að spila með honum."

Langaði að láta reyna á það í Bestu
Af hverju samdir þú við ÍBV?

„Ég tók ákvörðun um að skrifa undir við ÍBV því þetta leit út fyrir að vera mjög spennandi og krefjandi verkefni. Eftir erfitt tímabil hjá Selfossi í fyrra og lítinn spiltíma hafði ég samt enn þá trú á því að ég ætti mikið inni og mig langaði að láta reyna á það í Bestu."

Sesar, sem er fæddur árið 2006, kom við sögu í 13 Lengjudeildarleikjum í fyrra með uppeldisfélaginu Selfossi og skoraði í þeim eitt mark.

Sjokk þegar Láki hætti
Þegar Sesar var kynntur hjá ÍBV var Þorlákur Árnason þjálfari liðsins. Skömmu seinna hætti Láki og rúmum mánuði síðar var Aleksandar Linta ráðinn þjálfari liðsins. Var skrítið þegar Láki hætti rétt eftir að þú varst tilkynntur?

„Já, það var smá skrýtið þegar ég frétti að Láki hætti, því hann fékk mig inn í leikkerfið sitt og það var smá sjokk. En sem betur fer fengum við inn annan mjög góðan þjálfara, hann Linta. Hann er með mjög krefjandi og góðar æfingar og gefur góðar skýringar á hlutverki leikmanna."

Gefur liðinu svakalega innspýtingu
Gengi ÍBV er mun betra þegar fyrirliðinn Alex Freyr Hilmarsson er í liðinu. Hvað gefur hann liðinu?

„Alex er ekkert eðlilega góður gæi, innan sem utan vallar, og gefur liðinu svakalega innspýtingu þegar við þurfum á því að halda," segir Sesar að lokum.

Hefur skorað þrjú mörk í sumar.

Hefur skorað þrjú mörk í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ánægður með Róbert.

Ánægður með Róbert.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrirliðinn er gríðarlega mikilvægur.

Fyrirliðinn er gríðarlega mikilvægur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjamenn á góðu skriði.

Eyjamenn á góðu skriði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vann Fótbolti.net bikarinn með Selfossi 2024.

Vann Fótbolti.net bikarinn með Selfossi 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.12+3534
2KR11+1325
3Fram11+523
4Breiðablik11+919
5Valur12-416
6ÍA10-315
7Keflavík11-712
8Stjarnan12-511
9ÍBV11-511
10KA11-610
11Þór11-197
12FH11-136
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.