Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
   þri 02. júní 2026 16:48
Kári Snorrason
Gerðu grín að borða Valsara frá síðasta ári
Borði Víkinga á sunnudag.
Borði Víkinga á sunnudag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Borði Vals eftir að Gylfi var seldur.
Borði Vals eftir að Gylfi var seldur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur vann 5-1 stórsigur á Val á Hlíðarenda síðastliðinn sunnudag.

Stuðningsmenn Víkings voru að vonum ánægðir á meðan leiknum stóð og höfðu þeir meðferðis borða sem á stóð 'Enginn skilaréttur?'

Þar gera stuðningsmenn Víkings grín að margumtöluðum borða stuðningsmanna Vals sem stóð á „Enginn skilaréttur!“

Lestu um leikinn: Valur 1 -  5 Víkingur R.

Stuðningsmenn Vals mættu með þann borða í leik gegn Víkingi á Hlíðarenda á síðasta ári, skömmu eftir að Gylfi Þór Sigurðsson var seldur til Víkings frá Val.

Þá hafði Gylfi fengið gagnrýni fyrir byrjun sína hjá Víkingi og þótti ekki hafa staðið undir væntingum.

Síðan þá hefur hann hins vegar verið einn besti leikmaður deildarinnar. Hann lyfti Bestu deildar skildinum með Víkingi í lokaumferðinni á síðasta tímabili, einmitt gegn Val, og skoraði fyrra mark liðsins í þeim leik.

Á tímabilinu hefur Gylfi skorað fimm mörk og lagt upp eitt í átta deildarleikjum.
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 9 1 0 34 - 6 +28 28
2.    KR 10 8 1 1 38 - 23 +15 25
3.    Fram 9 6 2 1 25 - 16 +9 20
4.    Breiðablik 9 4 3 2 22 - 15 +7 15
5.    Valur 10 5 0 5 19 - 22 -3 15
6.    ÍA 9 3 3 3 12 - 16 -4 12
7.    Keflavík 9 3 2 4 12 - 18 -6 11
8.    KA 9 3 1 5 12 - 15 -3 10
9.    Stjarnan 10 3 1 6 18 - 22 -4 10
10.    Þór 9 2 0 7 7 - 23 -16 6
11.    ÍBV 9 1 2 6 14 - 23 -9 5
12.    FH 9 0 2 7 12 - 26 -14 2
Slapp
banner
banner