Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
banner
   þri 02. júní 2026 12:03
Kári Snorrason
Kenny Dalglish í krabbameinsmeðferð
Kenny Dalglish.
Kenny Dalglish.
Mynd: EPA
Sir Kenny Dalglish, ein mesta goðsögn í sögu Liverpool, er í meðferð við krabbameini.

Dalglish, sem er 75 ára, vildi halda veikindunum fyrir sig en staðfesti greininguna eftir að hafa óvart greint frá henni á samfélagsmiðlum.

„Ég er nú í meðferð við krabbameini. Ólíkt notkun minni á farsíma gengur meðferðin vel. Ég ætlaði að halda þessu sem einkamáli en gagnslaus tæknikunnátta mín hefur neytt mig til þess að gera þetta að opinberu máli,“ kom fram í færslu Dalglish.

Liverpool birti færslu fyrir skemmstu þar sem félagið sendi Dalglish og fjölskyldu hans stuðningskveðjur.


Slapp
banner
banner
banner