Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
   þri 02. júní 2026 10:09
Elvar Geir Magnússon
Viðræður Liverpool við Iraola miða vel áfram
Mynd: EPA
Andoni Iraola er í viðræðum við Liverpool um að taka við stjórastarfinu á Anfield eftir að Arne Slot var rekinn.

Iraola hætti hjá Bournemouth eftir síðasta tímabil og er talinn langlíklegastur til að verða næsti stjóri Liverpool. Leikstíll hans er talinn passa vel við það hvernig Liverpool vill spila.

BBC segir að viðræður Liverpool og Iraola miði vel áfram.

Iraola vill taka aðstoðarmann sinn hjá Bournemouth með á Anfield en hann heitir Tommy Elphick og hefur verið stuðningsmaður Liverpool alla ævi.

Elphick er fyrrum miðvörður Bournemouth, er 38 ára, en hann hafnaði því að taka við sem stjóri Bristol City.
Slapp
banner
banner