Markametið svo sannarlega í hættu - „Lætur ekki rigna upp í nefið á sér"

Myndir úr leiknum í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Myndir úr leiknum í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elías Már Ómarsson (1995) hefur spilað frábærlega með Víkingum það sem af er Íslandsmóti og bætti hann þremur mörkum við markafjölda sinn í stórsigri Víkings gegn Fram í gær.
Elías er einn markahæstur í deildinni með tólf mörk eftir tólf spilaða leiki í deildinni. Hann hefur einnig skorað tvö mörk í þremur bikarleikjum í sumar.
Fyrir leikinn í gær hafði Elías ekki skorað í þremur leikjum í röð og talaði um „smá þurrð" hjá sér í viðtali eftir leikinn. Mörkin tólf hafa komið í tíu byrjunarliðsleikjum og hefur framherjinn skorað 1,24 mörk að meðaltali á hverjum 90 mínútum spiluðum í deildinni.

Lestu um leikinn: Fram 0 - 5 Víkingur R.
Benoný Breki Andrésson á markametið í Bestu deildinni en hann skoraði 21 mark í deildinni tímabilið 2024. Benoný skoraði tíu mörk í 21 leik fyrir tvískiptingu og svo ellefu mörk í fimm leikjum í neðri hluta deildarinnar.
Elías, sem sneri heim til Íslands eftir rúman áratug erlendis sem atvinnumaður, er í toppformi, er að spila með langbesta og heitasta liði landsins og ef frá sem horfir mun hann bæta markametið í deildinni.
„Síðan ég kom hefur mér bara liðið mjög vel og það hafa allir bara tekið vel á móti manni. Ég hef aldrei verið í jafn góðu liði eins og hérna, ekki bara leikmennirnir heldur líka fólkið í kring, það eru allir frábærir. Þetta er bara mjög ljúft.''
Fyrir mót var talað um að Elías væri of þungur eftir heimkomuna frá Kína þar sem hann lék seinni hluta síðasta árs og var Elías orðaður við mögulegt lán til uppeldisfélagsins Keflavíkur.
„Maður talar á vellinum, það er það eina sem ég get gert, ég reyni að gera mitt besta fyrir liðið og það hefur gengið til þessa."
„Ég hef fyrst og fremst aldrei unnið neinn titil, það er markmiðið að vinna titil, að slá markametið yrði náttúrulega bara bónus," sagði Elías.
„Ég er gífurlega ánægður með hann og það eru ekki bara mörkin sem hann skorar, það er vinnuframlagið hjá honum og hvernig hann er að vinna fyrir liðið allt saman. Við leggjum mikla áherslu á það og það er rosalega auðvelt, get ég ímyndað mér, ég hef nú ekki skorað svona mörg mörk áður, að fara aðeins að slaka á og láta rigna upp í nefið á sér en hann gerir það ekki sama hversu vel það er búið að ganga," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, um Elías eftir leikinn í gær.

Elías Már skoraði þrennu í stórkostlegum sigri Víkinga! ???????????????? #bestadeildin pic.twitter.com/N0IxNUzETd
— Besta deildin (@bestadeildin) June 21, 2026

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elías Már: Hef aldrei verið í jafn góðu liði

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð