Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 02. júlí 2020 14:16
Elvar Geir Magnússon
ClubDub hitar upp í Fjósinu fyrir Val - ÍA
Aron Kristinn Jónasson í ClubDub.
Aron Kristinn Jónasson í ClubDub.
Mynd: Fótbolti.net - Arnar Daði Arnarsson
Klukkan 20:00 annað kvöld, föstudag, verður leikur Vals og ÍA í Pepsi Max-deild karla á Origo-vellinum á Hlíðarenda.

Valsmenn eru með alvöru dagskrá fyrir leikinn en Fjósið verður opið frá klukkan 17:00 og þar verður sannkölluð gleðistund.

Raftónlistartvíeykið feykivinsæla ClubDub hitar upp og þá er óvæntum uppákomum lofað.

Valsmenn hvetja fótboltaáhugamenn til að tryggja sér miða í gegnum Stubb, mæta snemma og gera sér glaðan dag!

föstudagur 3. júlí
20:00 Valur-ÍA (Origo völlurinn)
Athugasemdir
banner