Fulham er búið að ganga frá félagaskiptum fyrir miðjumanninn Joao Palhinha frá Sporting CP.
Fulham hafði betur í kapphlaupi við Wolves um þennan öfluga varnartengilið sem hefur spilað 77 leiki með Sporting á síðustu tveimur árum.
Palhinha vann sér byrjunarliðssæti í portúgalska landsliðinu í fyrra og var valinn í lið ársins í portúgölsku deildinni.
Fabrizio Romano greinir frá því að Palhinha muni fullkomna félagaskiptin til Fulham á morgun, sunnudag, og verði svo kynntur í vikunni.
Fulham borgar 22 milljónir evra fyrir Palhinha og er auk þess að reyna við Andreas Pereira, Kevin Mbabu og Zaidu Sanusi. Félaginu hefur ekki tekist að ljúka neinum félagaskiptum á fyrri hluta sumarsins.
Athugasemdir