Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   mán 02. ágúst 2021 18:35
Victor Pálsson
Gary Cahill hættur hjá Palace (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Gary Cahill, fyrrum leikmaður Chelsea, hefur staðfest það að hann sé farinn frá liði Crystal Palace.

Cahill er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Chelsea en hann lék með liðinu frá 2012 til 2019 eftir dvöl hjá Bolton.

Samningur Cahill við Palace rann út í sumar og hefur félagið ákveðið að framlengja ekki við þennan fyrrum enska landsliðsmann.

Cahill er 35 ára gamall hafsent en hann lék með Palace frá 2019 til 2021 og spilaði þá 45 deildarleiki.

Cahill á að baki 61 landsleik fyrir England en hann lagði landsliðsskóna á hilluna fyrir þremur árum.

Óvíst er hvort skórnir séu komnir á hilluna eða hvort Cahill finni sér nýtt lið á næstu dögum.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner