Fotbolti.net
02.09.17 - 19:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hörður Björgvin: Þeir spiluðu ekki sérstakan bolta

Auglýsing
Hörður Björgvin: Þeir spiluðu ekki sérstakan bolta
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Hörður Björgvin Magnússon var svekktur, eins og aðrir leikmenn íslenska landsliðsins, þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir tapleikinn gegn Finnlandi í undankeppni HM í dag.

<i>„Auðvitað er leiðinlegt að tapa leikjum, en við lærum af þessu. Við vissum að Finnarnir væru sterkir og þeir komu dýrvitlausir og þeir nýttu tækifærið sitt. Þeir spiluðu ekki sérstakan bolta, en það var auðvitað erfitt að komast fram hjá þeim.\"</i>

<i>„Við eigum tækifæri enn tækifæri,\"</I> sagði Hörður.
Finnland skoraði eina mark leiksins úr aukaspyrnu.

„Það var auðvitað skellur að fá á sig markið úr aukaspyrnu, hvað þá sláin inn, auðvitað viljum við að hann fari sláin út.\"

„Við erum mjög snöggir að koma til baka og ætluðum strax að jafna leikinn, en það var mjög erfitt að komast í gegn.\"

„Mér fannst þeir fá rosalega mikið af brotum, gefins brot, en við getum ekki kvartað mikið yfir því,\" sagði Hörður, en hann var síðan spurður frekar út í dómgæsluna í dag.

„Við reynum að hugsa eins lítið og hægt er um dómarann og reyna að einbeita okkur að leiknum. Auðvitað er samt leiðinlegt þegar þetta fer svona og dómarinn gefur þeim meira.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.