Raggi Sig: Fyrirliðann hjá þeim langaði að kýla mig
Auglýsing

Raggi á æfingu Íslands í Tampere á fimmtudaginn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þeir eru brjálaðir út í okkur, þeir héldu að þeir væru búnir að vinna okkur heima en svo tókum við það á endanum,\" sagði Ragnar Sigurðsson miðvörður Íslands við Fótbolta.net aðspurður um finnska liðið sem Ísland mætir í undankeppni HM 2018 klukkan 16:00 í dag.
„Ég held að þeir séu bara í hefndarhug og séu pirraðir. Ég var líka að pirra einhverja gaura þarna sem hata mig núna svo það er mikið í spilunum fyrir þá,\" sagði Raggi og hélt áfram.
„Það var einn þeirra að pirra mig allan leikinn en ég náði reyndar að halda haus yfir því og var ekkert að fá nein spjöld. Svo fór ég aðeins að rífa kjaft eftir leikinn og það sauð allt uppúr. Fyrirliðann hjá þeim langaði að kýla mig en það var bara gaman að þessu.\"
Nánar er rætt við Ragga í sjónvarpinu hér að ofan.
Leikur Finnlands og Íslands fer fram í Tampere í Tyrklandi og verður í beinni útsendingu á RÚV. Þeir sem ekki geta fylgst með þar geta náð textalýsingu á Fótbolta.net.
Smelltu hér til að sjá textalýsinguna